ABS sérfræðingur Junior staða/ABS Specialist Junior Position
Alcoa
- Location
- Iceland, Reyðarfjörður
- Work model
- On-Site
- Level
- Entry
- Posted
- Aug 28, 2026
Skills
About this role
Mótaðu framtíðina Sem starfsmaður Alcoa gegnir þú mikilvægu hlutverki í að skapa verðmæti og nýta tækifæri til árangurs. Hjá okkur er sérhver starfsmaður liðsmaður, hugmyndasmiður og þátttakandi í að móta framtíðina. ABS sérfræðingur Við leitum að hæfum og metnaðarfullum einstaklingi í starf ABS sérfræðings. ABS sérfræðingur styður innleiðingu og þróun Alcoa Business System (ABS) með þjálfun, leiðsögn, samhæfingu verkefna og umbótastarfi sem stuðlar að framúrskarandi rekstri og bættum árangri fyrirtækisins. Um er að ræða starf til eins árs sem er frábært tækifæri fyrir einstakling sem vill byggja upp þekkingu og reynslu á sviði umbótastarfs og rekstrarþróunar. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni, verðmæta reynslu og góð tækifæri til faglegrar þróunar innan Alcoa. 1. Almennt um starfið Markmið og tilgangur starfs Starfið felur í sér greiningu á rekstrarferlum og notkun ABS verkfæra, auk þátttöku í kortlagningu ferla, stuðningi við umbótaverkefni og gerð tæknilegra skýrslna um framvindu ABS innleiðingar á starfsstöðinni. Verksvið eða meginverkefni starfsins Styðja rekstrarsvið við innleiðingu Alcoa Business System (ABS) með áherslu á innleiðingu og viðhald Operator-Centric vinnulagsins. Helstu verkefni fela í sér utanumhald og stuðning við Digital Daily Management System (DMS), framkvæmd og yfirferð á Value Stream Mapping (VSM), stuðning við innleiðingu RACI ábyrgðarfylkja og skipulagða lausn vandamála, greiningu umbótatækifæra (IDhall), eflingu stöðugra umbóta og að tryggja skilvirka notkun ABS verkfæra í rekstrarferlum. Ábyrgð í starfi Styður innleiðingu Alcoa Business System (ABS) með beitingu Lean-aðferða og umbótaverkfæra, þar á meðal 5 Whys, orsaka- og afleiðingargreiningu, SIPOC, RACI og A3 Problem Solving. Stuðlar að skipulagðri lausn vandamála með yfirferð A3-skýrslna og leiðsögn til teyma við rótargreiningar og úrbætur. Metur framleiðniaukandi verkefni og viðskiptagreiningar með áherslu á umbætur og virðissköpun. Stýrir kortlagningu ferla og þróun SIPOC-greininga innan álversins. Styður þróun og stöðlun vinnuleiðbeininga og rekstrarferla. Tekur þátt í bilunarhamsgreiningum og Pareto-greiningum til að bæta áreiðanleika og afköst ferla. Nýtir rekstrarstjórnunarkerfi og stuðlar að bættum stjórnsýslu- og verkferlum. Hanna og þróar kerfi fyrir mælingar, eftirfylgni og skýrslugerð til að fylgjast með markmiðum, lykilmælikvörðum (KPI) og árangri umbótaverkefna. 2. Grunnkröfur Menntun og/eða réttindi sem krafist er BS-gráða í málmfræðiverkfræði, vélaverkfræði, rafmagnsverkfræði eða sambærilegu verkfræðisviði. Reynsla og hæfni sem krafist er Góð þekking á Lean, stöðugum umbótum og aðferðafræði rekstrarframúrskarandi vinnubragða. Reynsla af þjálfun, leiðsögn og verkstjórn teyma við notkun umbótaverkfæra og stjórnunarkerfa. Framúrskarandi hæfni í rituðum og munnlegum samskiptum og framsetningu efnis. Mjög góð enskukunnátta. Góð kunnátta í Power BI og Microsoft Office forritum. Hæfni til að útbúa kynningar og skýrslur fyrir stjórnendur í PowerPoint. Reynsla af verkefnastjórnunarhugbúnaði og aðferðafræði verkefnastjórnunar. Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil. Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki. Frekari upplýsingar um starfið veitir Anna Kristmundsdóttir, sérfræðingur í ráðningum í gegnum netfangið