Skipuleggjandi viðhalds
- Location
- Reyðarfjörður, Iceland
- Employment
- Full Time
- Work model
- On-Site
- Level
- Mid
- Posted
About this role
Mótaðu framtíðina Sem starfsmaður Alcoa gegnir þú mikilvægu hlutverki í að skapa verðmæti og nýta tækifæri til árangurs. Hjá okkur er sérhver starfsmaður liðsmaður, hugmyndasmiður og þátttakandi í að móta framtíðina. Alcoa Fjarðaál leitar að metnaðarfullum einstakling í starf skipuleggjanda viðhalds. Starfið felur í sér að skipuleggja verkefni, varahluti, efni, verkfæri, búnað, öryggisleyfi og skjöl. Skipuleggjandi viðhalds ber ábyrgð á skipulagsferlinu og tryggir tímanlega framvindu viðhaldsbeiðna, auk þess að vinna náið með leiðtogum viðhalds, rekstrarstjórum, framkvæmdarstjórum og tæknistjórum til að viðhalda skilvirkni og gæðum. Viðkomandi mun starfa í nánu samstarfi við alla skipuleggjendur, aðstoða við skipulagsverkefni, afla tilboða og útbúa beiðnir. Einnig verður gert ráð fyrir að hann/hún geti sinnt afleysingum fyrir aðra skipuleggjendur vegna fjarvista og orlofs, eftir því sem aðstæður leyfa. Helstu verkefni og ábyrgð Skipuleggja viðhaldsvinnu í nánu samstarfi við framleiðslu- og viðhaldsteymi Áætla tíma, varahluti og annað sem þarf til að leysa viðhaldsvinnu af hendi Tryggja að viðhaldsverk séu unnin með gæði, hagkvæmni og öryggi að leiðarljósi Gera innkaupabeiðnir og leita tilboða í varahluti og viðhaldsverk Halda utan um viðaldsgögn til frekari greiningar að verki loknu Hæfniskröfur og menntun Iðnmenntun eða önnur hagnýt menntun Reynsla af skipulagningu viðhalds og áætlanagerð er æskileg Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar Sterk öryggisvitund og lipurð í samskiptum Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil. Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki. Frekari upplýsingar um starfið veitir Anna Kristmundsdóttir, sérfræðingur í ráðningum í gegnum netfangið anna.kristmundsdottir@alcoa.com . Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að nýta tækifærin til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í. Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um. Hægt er að sækja um starfið á Alcoa.is . Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember _____________________________________________________________________________ Alcoa Fjarðaál is seeking an ambitious individual to join us as a Maintenance Planner. The role involves planning tasks, spare parts, materials, tools, equipment, safety permits, and documentation. The Maintenance Planner will manage the planning process and ensure the timely progress of maintenance work orders while collaborating with maintenance supervisors, operations managers, production leaders, and technical specialists to maintain efficiency and quality. This person will work alongside all planners, assisting with planning activities, obtaining quotations, and creating requests. They will also be required to provide coverage for other planners during absences and vacations, as circumstances allow.
Key Responsibilities
Collaborate with production and maintenance teams to plan maintenance work Estimate time, spare parts, and resources